| |
|
| |
Sumardagurinn fyrsti
Enginn kennsla er sumardaginn fyrsta 23. apríl.
Frístundaskólinn er einnig lokaður.
Gleðilegt sumar :0)
Ný heimasíða
Ný heimasíða hjá Myllubakkaskóla er í vinnslu
og mun verða opnuð 24. apríl n.k.
Starfsdagur kennara
Mánudaginn 27. apríl er starfsdagur kennara.
Engin kennsla er þann dag en Frístundaskólinn er opinn frá kl. 8:10-17:00
fyrir þá nemendur sem eru í frístund og hafa tilkynnt komu sína.
Engin samræmd próf
Fyrirhuguð samræmd próf hjá 10. bekk
sem áttu að vera 7., 8. og 11. maí 2009 falla niður.
Gjöf úr dánarbúi
Til minningar um
Guðlaugu Torfadóttur líffræðings - f. 11.08.1946 d. 04. 09.2007.
og foreldra hennar, Elínu
Sigurjónsdóttur og Torfa Guðbrandsson
hefur bókasafn Myllubakkaskóla þegið bókasafn Guðlaugar að gjöf.
Vonandi verða bækurnar nemendum
skólans til fræðslu, yndis og uppbyggingar um ókomna framtíð.

Árshátíð Myllubakkaskóla
Árshátíðin gekk mjög vel fyrir sig og voru nemendur skólanum til sóma.
Gaman var að sjá hversu margir gestir mættu.
Hægt er að skoða myndir í myndasafni.
Stóra upplestrarkeppnin
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin 9. mars í Bíósal Duushúsa.
Sandra Lind Þrastardóttir og Hildigunnur Gísladóttir
tóku þátt fyrir hönd Myllubakkaskóla.
Þær stóðu sig báðar mjög vel og varð Sandra Lind í 1. sæti.
María Rose í Heiðarskóla varð í 2.
sæti og í 3. sæti varð Sólborg í
Holtaskóla.
Gettu betur
Í liði Myllubakkaskóla voru
Sylvía 9. IM, Viktor 9. FK og Rán Ísold 8. UG
Liðstjóri var Páll 10. AV
Lið Myllubakkaskóla lenti í 2. sæti en fimm skólar tóku þátt.
Þau
stóðu sig öll með prýði og verður
gaman að sjá hvernig gengur á næsta ári.
Skólahreysti
Eyþór, Marsibil, Sara og Davíð kepptu fyrir hönd Myllubakkaskóla
í Skólahreysti í Smáranum. Þau
stóðu sig öll með prýði og má
geta þess að
Eyþór vann báðar sínar greinar og setti
m.a. íslandsmet í upphífingum. Gerði 58
upphífingar. Rúmlega 80 nemendur úr 7.
- 10. bekk fóru og studdu keppendur.
Fleiri myndir má sjá hér
Röskun á skólastarfi vegna óveðurs
Þegar
veðurspár gefa til kynna að óveður sé
í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og
Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við
skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist
þess þörf.
Mikilvægt
er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og
veðurspám og hagi sér í samræmi
við aðstæður hverju sinni.
Foreldrar
leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni
í og úr skóla þótt engin tilkynning
hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar
aðstæður svo að ekki sé óhætt
að börn þeirra sæki skóla þá
skulu þeir tilkynna skólanum um það og
lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg
forföll.
Við
slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og
þar er öruggt skjól fyrir börnin.
Til foreldra barna í frístundaskóla Reykjanesbæjar
Öll
sveitarfélög glíma nú við verulegan
samdrátt í tekjum sem mæta þarf með
hagræðingu í rekstri. Reykjanesbær leggur
áherslu á grunnþjónustu við
bæjarbúa á sviði grunnskóla,
leikskóla og félagsþjónustu.
Óhjákvæmilegt er að endurskoða
aðra þætti í starfi okkar tímabundið,
sem við höfum getað boðið með miklum
niðurgreiðslum undanfarin ár. Einn þáttur
þess er frístundaskóli sem hefur verið í
boði að loknum grunnskóladegi. Þrátt fyrir
að Reykjanesbær muni áfram niðurgreiða
frístundaskóla er nauðsynlegt að gera
verulegar breytingar sem taka bæði til þjónustu
og gjaldskrár.
Þar
sem dregið verður úr niðurgreiðslu
bæjarins til frístundaskóla frá
áramótum, verður mánaðargjaldið sem
foreldrar greiða 14.400 kr.
Reykjanesbær ber þó enn um fjórðung kostnaðar við þennan rekstur.
Daglegur starfstími verður til kl.17.00 til vors.
Æfingagjald
verður ekki innifalið í greiðslu foreldra og ekki
verður unnt að bjóða akstur á
æfingar eða íþróttaskóla fyrir 1.
bekkinga. Í stað þess verður boðið upp
á hreyfistundir í skólanum 2-3 í viku og
aðstoð við heimanám eins og kostur er.
Gjaldskrá:
Mánaðargjald (innifalið hreyfistundir og hressing)
14.400-kr
Tímagjald 315- kr
Síðdegishressing 105-kr/dag
Gert er ráð fyrir að þessi breyting taki gildi 1. janúar 2009.
Eiríkur Hermannsson
Fræðslustjóri Reykjanesbæjar
Hljóðbækur
Sú nýbreytni hefur orðið að allar
nýjar hljóðbækur og hlustunarefni sem
Námsgagnastofnun gefur út verður nú aðeins
gefið út á netinu til niðurhals. Eldri
hljóðbækur verða einnig aðgengilegar á
netinu á heimasíðu Námsgagnastofnunar
www.nams.is. Nú geta nemendur með aðstoð
foreldra nýtt sér bækurnar t.d. með
því að setja þetta í i-podin eða
á MP3 spilarann. Mikilvægt er að nemendum sem
eiga við lestrarörðuleika að etja nýti
sér þetta
Nánari upplýsingar er að finna á http://www.nams.is/
Hér er svo listi yfir hljóðbækur sem aðgengilegar eru á netinu til niðurhals
skoða listann
Hvatning frá foreldrafélaginu.
Foreldrafélag Myllubakkaskóla (FFM) hvetur foreldra að gerast bekkjarfulltrúar.
Hlutverk þeirra er aðallega að vera tengiliður milli foreldra bekkjarins og foreldra og kennara.
Ef foreldrar vita af hvor öðrum og geta talað saman
þá verða börnin okkar öruggari og
ákveðið öryggisnet skapast.
Foreldrafélagið mun í vetur bjóða upp á samstarf við bekkjarfulltrúa.
Þegar þið komið í foreldraviðtal 9.
september mun vera skráningarblað við hverja stofu og
hvetjum við ykkur að skrifa á það. 2-3
bekkjarfulltrúar í hverjum bekk er fínt. Einnig er
hægt að senda póst á austurg@internet.is
Með kveðju
Stjórn Foreldrafélags Myllubakkaskóla.
Skólabúningar
Skólabúningur Myllubakkaskóla er til sölu í Sportbúð Óskars.
Gallinn kostar kr.5.980.- og er fyrir 1. – 5.bekk.
Einnig eru til hettupeysur á kr.4.980.- fyrir 6. –
10.bekk. 1.000 krónur af verði hettupeysanna rennur
í ferðasjóð 10.bekkjar eins og í fyrra.
Foreldraráð Myllubakkaskóla
_______
|
|
|